Viðbygging við grunnskólann á áætlun

Viðbygging við grunnskólann á áætlun

Framkvæmdir við Grunnskóla Húnaþings vestra ganga vel og skólabyggingin rýkur upp. Samið var við Alefli ehf.  um uppsteypu, þakvirki og þakeiningar.  Uppsteypu er nú lokið og byrjað er að setja upp þakeiningar. Búið er að loka þaki á norðurhluta viðbyggingarinnar og byrjað er á þakvirki á miðhluta hennar.  Áætlanir gera ráð fyrir að húsinu verði lokað á þessu ári.

Allar áætlanir Aleflis ehf. hafi gengið eftir og hefur vinna þeirra og samskipti verið til fyrirmyndar. Eftir áramót hefst vinna innanhúss og farið verður að einangra útveggi og setja glugga í húsið. Búið er að bjóða út rafmagn og pípulagnir, samið var við Tengill ehf.  og  Ólaf Stefánsson pípulagnameistara um þá verkþætti.  Útboð á öðrum verkþáttum fara af stað á næstu vikum.

Áætlað er að taka viðbygginguna í notkun í áföngum og verður þeim forgangsraðað út frá þörfum nemenda.  Fyrstu hlutar hússins verða teknir í notkun næsta haust en þá er gert ráð fyrir að  matsalur, eldhús og hluti tónlistarskóla tekinn í notkun. Samhliða þarf að ljúka tengingu við núverandi skólabyggingu ásamt fatahengi og snyrtingum í eldra húsi.

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?