Viðbragðsaðilar komu saman á minningardegi

Fulltrúar viðbragðsaðila í Húnaþingi vestra. Lögreglan var í útkalli og gat því ekki tekið þátt í st…
Fulltrúar viðbragðsaðila í Húnaþingi vestra. Lögreglan var í útkalli og gat því ekki tekið þátt í stundinni.

Viðbragðsaðilar í Húnaþingi vestra komu saman á alþjóðlegum minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa þann 16. nóvember sl. Frost var í lofti og fallegt á að líta í Kirkjuhvammi þegar hópurinn kom saman, tendraði ljós og minntist látinna í umferðinni. Sveitarstjóri flutti stutta tölu og þakkaði viðbragðsaðilum þeirra ómetanlega framlag til samfélagsins.

Sameinuðu þjóðirnar hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember alþjóðlegum minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa. Að baki minningardeginum standa auk Samgöngustofu, innviðaráðuneytið, Sjálfsbjörg, Landsbjörg, lögreglan og Vegagerðin.

Á vef Samgöngustofu kemur fram að dagurinn er til að minnast þeirra sem látist hafa í umferðinni, leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni en ekki hvað síst að þakka þeim viðbragðsaðilum sem veita hjálp og björgun. Að þessu sinni var sérstök áhersla lögð á notkun bílbelta. 

Hvers vegna minningardagur?

Um það bil 3.600 einstaklingar láta lífið og hundruð þúsunda slasast í umferðinni í heiminum á degi hverjum. Það eru u.þ.b. 1.3 milljónir á einu ári.
Frá því að fyrsta banaslysið var skráð á Íslandi 25. ágúst 1915, hafa ríflega 1600 látist í umferðinni. Enn fleiri slasast alvarlega, takast á við áföll, sorgir og eftirsjá af þessum völdum.

Vart er til sá einstaklingur sem þekkir ekki einhvern sem lent hefur í alvarlegu slysi í umferðinni. Það er því til mikils að vinna að koma í veg fyrir slysin og megi þessi dagur efla vitund okkar fyrir því og ábyrgð.

Lagið When I think of Angels er orðið einkennislag minningardagsins hér á landi. Það er samið af KK og sungið af systur hans Ellen. Kristján samdi lagið til minningar um systur þeirra sem lést í umferðarslysi í Bandaríkjunum árið 1992.

Var efnið á síðunni hjálplegt?