Vetrarveiðar á ref

Vetrarveiðar á ref

Auglýst er eftir aðilum til að stunda vetrarveiðar á ref.  Áhugasamir skili inn umsóknum þar um inn á skrifstofu Húnaþings vestra. Svæðin verða 6: Vatnsnes, Vesturhóp, Miðfjörður, Víðidalur, Hrútafjörður austan og Hrútafjörður vestan og einn ráðinn á hvert svæði.   Í umsókn skal koma fram hvar umsækjandi ætlar að staðsetja skothús og stunda vetrarveiðar á ref. Ef umsækjandi ætlar að stunda veiðarnar utan eigin landareignar skal skriflegt leyfi landeigenda fylgja umsókninni. Húnaþing vestra hyggst gera skriflega samninga við þá veiðimenn sem úthlutað verður leyfum til vetrarveiða á ref. Í þeim samningi mun m.a. koma fram að kr. 8.000- verða greiddar fyrir hvert unnið dýr, að hámarki 17 dýr á hverju svæði. Skilyrði leyfisveitingar er að umsækjandi hafi gilt skotvopnaleyfi og veiðikort útgefið af Umhverfisstofnun. Tekið er fram að einungis þeim er veitt verður leyfi til vetrarveiða á ref verður greitt fyrir unnin dýr.

Skriflegum og undirrituðum umsóknum um vetrarveiði á ref skal skila á skrifstofu Húnaþings vestra eigi síðar en 30. desember nk.

Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitarstjóri.

Var efnið á síðunni hjálplegt?