Vetrarveiðar á ref

Vetrarveiðar á ref

Þeim aðilum sem hyggjast stunda vetrarveiðar á ref til 30. apríl nk. er hér með gefinn kostur á að sækja um leyfi þar um til Húnaþings vestra. Í umsókn skal koma fram hvar umsækjandi ætlar að staðsetja skothús og stunda vetrarveiðar á ref. Ef umsækjandi ætlar að stunda veiðarnar utan eigin landareignar skal skriflegt leyfi landeigenda fylgja umsókninni. Húnaþing vestra hyggst gera skriflega samninga við þá veiðimenn sem úthlutað verður leyfum til vetrarveiða á ref. Í þeim samningi mun m.a. koma fram að kr. 4.000- verða greiddar fyrir hvert unnið dýr. Skilyrði leyfisveitingar er að umsækjandi eigi lögheimili í Húnaþingi vestra og hafi gilt veiðikort útgefið af Umhverfisstofnun. Tekið er fram að einungis þeim er veitt verður leyfi til vetrarveiða á ref verður greitt fyrir unnin dýr.

Skriflegum og undirrituðum umsóknum um vetrarveiði á ref skal skila á skrifstofu Húnaþings vestra eigi síðar en 13. nóvember nk.

Skúli Þórðarson, sveitarstjóri.

Var efnið á síðunni hjálplegt?