Verum viðbúin

Verum viðbúin

Almannvarnadeild ríkislögreglustjóra hefur gefið út bæklinginn Verum viðbúinn með það að markmiði að efla viðbúnað almennings og styrkja seiglu samfélagsins ef út af bregður. 

Öryggi er sameiginlegt verkefni og með einföldum undirbúningi geta heimili aukið eigið öryggi, stutt við nágranna og auðveldað sveitarfélögum og viðbragðsaðilum að sinna hlutverki sínu þegar á reynir. 

Á undanförnum árum höfum við upplifað eldgos, óveður og aðrar áskoranir. Það minnir okkur á mikilvægi viðbúnaðar. Markmiðið er að fleiri hafi hugsað sinn viðbúnað áður en eitthvað kemur upp á. 

Íbúar Húnaþings vestra eru hvattir til að kynna sér efni bæklingsins og einnig heimasíðuna verumvidbuin.is

Hægt er að sækja bæklinginn hér á íslensku

Hér er hægt að sækja bæklinginn á ensku

Og hér er hægt að sækja bæklinginn á pólsku

 

Einnig er bæklingur á táknmáli væntanlegur.

Var efnið á síðunni hjálplegt?