Verkleg þjálfun slökkviliðsmanna

Verkleg þjálfun slökkviliðsmanna

Miklar kröfur eru gerðar til þjálfunar slökkviliðsmanna. Dagana 23.-25. september sl. voru haldin verkleg námskeið á Hvammstanga fyrir slökkviliðsmenn sem lokið höfðu bóklegum námskeiðum 1 og 2 fyrir hlutastarfandi. Brunamálskólinn sem rekinn er af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, stóð fyrir námskeiðunum. Leiðbeinendur  voru frá Brunavörnum Árnessýslu og var æft og kennt m.a. í Slökkvistöðinni á Hvammstanga, Félagsheimilinu Hvammstanga, á hafnarsvæðinu á Hvammstanga, við Sláturhús KVH og í yfirtendrunargámi á Blönduósi.

Námskeiðin voru haldin sameiginlega fyrir slökkviliðin á Norðurlandi vestra og komu nemendur frá Sauðárkróki og Skagaströnd auk Hvammstanga. Þátttakendur voru 16 talsins.

Var efnið á síðunni hjálplegt?