Vel sóttur íbúafundur um veg nr. 711

Vel sóttur íbúafundur um veg nr. 711

Rúmlega 80 manns mættu á íbúafund um ástand vegar nr. 711 um Vatnsnes á Hótel Hvítserk í gærkveldi.  Ráðherra samgöngumála, Sigurður Ingi Jóhannesson, mætti á fundinn og fór yfir hvaða möguleikar voru í stöðunni. 

Magnús Magnússon sveitarstjórnarfulltrúi setti fundinn.  Framsögumenn voru Ingveldur Ása Konráðsdóttir formaður byggðarráðs Húnaþings vestra, Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir fulltrúi íbúa og Sigurður Ingi Jóhannesson samgönguráðherra.  Fundarstjóri var Júlíus Guðni Antonsson.

Sigurður hlustaði á framsögu fulltrúa sveitarstjórnar og íbúa og fór síðan yfir samgönguáætlun og nefndi liði sem ekki væru sundurliðaðir í áætluninni og væri mögulega hægt að nota til að fara í framkvæmdir á Vatnsnesvegi, svokallaður tengivegapottur. 

Fundurinn var almennt góður og málefnalegar fyrirspurnir og innlegg íbúa sem sjá má hér:  https://www.facebook.com/gudrunsteinbj/posts/10155442346181525

Nokkur von myndaðist um úrbætur en í blálokin, þegar slíta átti fundi, stóð fulltrúi vegagerðarinnar upp og sagði að ekkert yrði af því sem ráðherra talaði um, vegagerðin væri búin að úthluta tengivegapotti fyrir Norðurland næstu þrjú árin og að kannski væri hægt að nota einhverja aura hjá okkur eftir það!  Einnig sagði hann að ekki sé hægt að fara í framkvæmdir nema ýtrustu öryggisstöðlum sé fullnægt með fullri 7 metra vegbreidd og það sé of kostnaðarsamt. 

Er þá algjört öryggisleysi í 20 – 30 ár betra en að lagfæra veginn í samræmi við það sem þekkist í dreifbýli erlendis þ.e. 1 ½ vegbreidd og minni vegflái?  

Samkvæmt þessu virðast valkostirnir vera annað hvort reiðgata eða hraðbraut!

Var efnið á síðunni hjálplegt?