Vel heppnuð brúðulistahátíð

Vel heppnuð brúðulistahátíð

Um nýliðna helgi fór brúðulistahátíðin HIP fest 2026 sem Handbendi brúðuleikhús stóð fyrir á Hvammstanga. Er þetta í fimmta sinn sem hátíðin er haldin og óhætt að hún verði glæsilegri með hverju skiptinu. Haldnar voru fjölmargar alþjóðlegar brúðulistasýningar á hinum ýmsu sýningarstöðum á Hvammstanga. Auk Félagsheimilisins og Stúdíó Handbendi fóru fram sýningar í gamla VSP húsinu og í aðstöðu sláturhússins í Meleyrar húsinu við höfnina. Sýningar voru vel sóttar og settu gestir og listamenn mikinn og góðan svip á bæjarlífið um helgina. Einnig voru haldnar ýmsar vinnusmiðjur sem opnar voru öllum svo sem í sprettibókagerð,  skuggamyndum og haldið var Master Class í grímuleik. Krakkarnir úr krakkasveiflunni sýndu afrakstur vinnu sinnar við gerð brúðuleikhúsa í kassa og listamenn sátu fyrir svörum í listamannaspjalli.

Sýningarnar voru víðsvegar að úr heiminum auk lokasýningar Rótar sem Handbendi setti upp í samvinnu við Þjóleikhúsið, Menningarfélag Akureyrar og Listahátíðar í Reykjavík. Sýningin tekur á spurningum varðandi mótun sjálfsmyndar okkkar, áhrif uppruna á líf okkar og þörfina fyrir að tilheyra.

Aðrar sýningar voru:

  • Puzzles Theater frá Kanada setti upp sýninguna Skógar þar sem sprekum og þurrkuðum rótum var gefið líf með einstökum hætti.
  • Trukitrek frá Spáni og Ítalíu sýndi Klikk, framtíðarverk þar sem brúður og videolist fléttast saman í magnaða ádeilu um þrældóm algóriþmans.
  • Brúðuleikhús akademíu Volyn-hérðaðs í Úkraínu sýndi sýninguna Vögguvísa stjörnunnar sem hugsuð er fyrir áhorfendur 5 ára og yngri. Einstaklega litríkt og fallegt verk frá listamönnum sem starfa við erfiðar aðstæður sem byggir á vögguljóðum og hefðunum í kringum þau.
  • Zaches leikhúsið frá Ítalíu sýndi hið klassíska ævintýri Öskubusku í eldri gerð en við eigum að venjast. Í sýningunni blandast samn brúðuleikur, nútímadans og skuggaleikur í einstakt sjónarspil. 
  • Frú Paulette frá Spáni sýndi örsýninguna Syndarinn, erótíska brúðusýningu sem er7 mínútur að lengd og aðeins fyrir 3 áhorfendur í einu. Áhorfendur gægjast í sýningunni bókstaflega inn í heim syndarans.

Við óskum forsvarsmönnum Handbendis til hamingju með vel heppnaða hátíð.

Nánari upplýsingar á heimasíðu hátíðarinnar.

Var efnið á síðunni hjálplegt?