Vegleg gjöf til Velferðarsjóðs Húnaþings vestra

Vegleg gjöf til Velferðarsjóðs Húnaþings vestra

Ólöf Ólafsdóttir á Tannstaðabakka kom á fund stjórnar Velferðarsjóðs Húnaþings vestra mánudaginn 7. desember sl. og færði sjóðnum að gjöf kr. 600.000.

Ólöf hefur unnið að gerð bútasaumsteppa undanfarin ár og hafa þau verið afar vinsæl bæði innan og utan héraðs.

Styrktarfjárhæð Ólafar til Velferðarsjóðsins er líkt og undanfarin þrjú ár afrakstur sölu umliðins árs og hefur Ólöf styrkt sjóðinn mjög myndarlega síðastliðin ár eða kr. 2.000.000 á fjórum árum.

Stjórn Velferðarsjóðs er bæði hrærð og glöð yfir þessu göfuga framtaki Ólafar og þakklát fyrir þann fallega hug sem býr að baki.

Var efnið á síðunni hjálplegt?