Vegleg gjöf til velferðarsjóðs

Á myndinni frá vinstri: Magnús Magnússon, Elísa Sverrisdóttir, Ólöf Ólafsdóttir og Jenný Þórkatla Ma…
Á myndinni frá vinstri: Magnús Magnússon, Elísa Sverrisdóttir, Ólöf Ólafsdóttir og Jenný Þórkatla Magnúsdóttir.

Ólöf Ólafsdóttir á Tannstaðabakka kom á fund stjórnar Velferðarsjóðs Húnaþings vestra miðvikudaginn 12.desember sl. og færði sjóðnum að gjöf kr. 504.000.

Ólöf hefur unnið að gerð bútasaumsteppa undanfarið ár og selt gestum og gangandi m.a. á jólamarkaðnum í Félagsheimili Hvammstanga fyrir skömmu.

Raunar gerði Ólöf slíkt hið sama í fyrra og lét þá umtalsverða upphæð af hendi rakna til Velferðarsjóðsins.

Stjórn Velferðarsjóðs er bæði hrærð og glöð yfir þessu göfuga framtaki Ólafar og þakklát fyrir þann fallega hug sem býr að baki.

 

Hægt er að sækja um í velferðarsjóðinn núna fyrir jól. Þeir sem eiga rétt á því eru aðilar sem eru að glíma við fjárhagsvanda.

Eftirfarandi aðilar svara fyrir hönd sjóðsins:
Elísa Sverrisdóttir, fyrir hönd Rauðakross: elisasverris@gmail.com
Jenný Þórkatla Magnúsdóttir, fyrir hönd Fjölskyldusviðs: jenny@hunathing.is
Magnús Magnússon, fyrir hönd kirkjunnar: srmagnus@simnet.is  

Var efnið á síðunni hjálplegt?