Úthlutun úr Húnasjóði

Þinghúsið á Hvammstanga á öðrum áratug síðustu aldar en þar var Alþýðuskólinn starfræktur.
Þinghúsið á Hvammstanga á öðrum áratug síðustu aldar en þar var Alþýðuskólinn starfræktur.

Á 1283. fundi byggðarráðs sem fram fór þann 20. júlí 2026 úthlutaði ráðið styrkjum úr Húnasjóði. Í ár bárust 9 umsóknir og uppfylltu 7 þeirra skilyrði til úthlutunar. Styrkirnir hljóðuðu upp á kr. 100.000  hver.  Eftirtalin hlutu styrk að þessu sinni:

Aðalheiður Sif Njálsdóttir, vegna náms í kennarafræðum til B.Ed. gráðu.
Guðrún Helga Magnúsdóttir, vegna náms í kennarafræðum til MT gráðu.
Elísabet Eir Steinbjörnsdóttir, vegna diplómanáms í fagnámi sjúkraliða í öldrun og heimahjúkrun.
Jóhanna Maj Júlíusdóttir Lundberg, vegna náms í kennarafræðum til B.Ed. gráðu.
Inga Rut Ómarsdóttir, vegna meistararéttinda í framreiðslu.
Ragnar Bragi Ægisson, vegna meistararéttinda í framreiðslu.
Már Hermannsson, vegna sveinsprófs í pípulagningum.

Húnasjóður var stofnaður af Ásgeiri Magnússyni og Unni Ásmundsdóttur til að minnast starfs Alþýðuskóla Húnvetninga, sem Ásgeir stofnaði og rak á Hvammstanga árin 1913-1920. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að endurmenntun og fagmenntun í Húnaþingi vestra. Samkvæmt skipulagsskrá fyrir Húnasjóð sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar þann 12. október 2000 skal sveitarsjóður leggja sjóðnum árlega til fé skv. fjárhagsáætlun hverju sinni. Árlegu framlagi Húnaþings vestra ásamt hálfum vöxtum höfuðstóls skal úthluta í styrki á ári hverju.

Frá árinu 2001 hefur sjóðurinn styrkt 170 einstaklinga um samtals kr. 16 milljónir.

Við óskum styrkþegum innilega til hamingju með námslokin og styrkina.

   

   

   

Var efnið á síðunni hjálplegt?