Úthlutun styrkja úr Húnasjóði 2018

Úthlutun styrkja úr Húnasjóði 2018

Á fundi byggðarráðs Húnaþings vestra þann 26. júlí sl. var fjallað um umsóknir um styrki úr Húnasjóði.  7 umsóknir bárust um styrk úr Húnasjóði, þar af voru 5 sem uppfylltu skilyrði til úthlutunar.  Samþykkt var að styrja eftirtalda:

  • Albert Jóhannsson, nám til Bs í viðskiptafræði
  • Guðrún Lára Magnúsdóttir, nám til diploma í jákvæðri sálfræði
  • Ingunn Elsa Rafnsdóttir, félagsliðanám
  • Jóhannes Geir Gunnarsson, nám í búfræði
  • Unnur Jóhannsdóttir, nám til Bs í búvísindum

Styrkfjárhæð á hvern styrkþega er kr. 100.000

Afhending styrkja fór fram á Hlöðunni kaffihús þann 16. ágúst sl. og afhenti Ingveldur Ása Konráðsdóttir formaður byggðarráðs styrkina. 

Um Húnasjóð

Húnasjóð stofnuðu hjónin Ásgeir Magnússon og Unnur Ásmundsdóttir til þess að minnast starfs Alþýðuskóla Húnvetninga, sem Ásgeir stofnaði og rak á Hvammstanga árin 1913-1920.  Tilgangur sjóðsins er að stuðla að endurmenntun og fagmenntun í Húnaþingi vestra.  Samkvæmt skipulagsskrá fyrir Húnasjóð sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar þann 12. október 2000 skal sveitarsjóður leggja sjóðnum árlega til fé skv. fjárhagsáætlun hverju sinni.  Árlegu framlagi Húnaþings vestra ásamt hálfum vöxtum höfuðstóls skal úthluta í styrki á ári hverju.

Sjá úthlutunarreglur Húnasjóðs

Var efnið á síðunni hjálplegt?