Útboð á skólaakstri fyrir Húnaþing vestra
Húnaþing vestra auglýsir útboð vegna skólaaksturs í Húnaþingi vestra.
Um er að ræða sjö akstursleiðir og bjóðendur geta boðið í eina eða fleiri leiðir. Frávikstilboð eru heimiluð.
Áhugasamir geta óskað eftir útboðsgögnum á netfanginu siggi@hunathing.is eða í síma 455-2400.
Yfirlit um tímasetningar:
- Fyrirspurnatíma lýkur 17. mars 2023.
- Samhljóða svör birt 20. mars 2023 kl. 15:00.
- Tilboð verða opnuð 24. mars 2023 kl. 13:00
- Opnunarstaður tilboða, skrifstofa Húnaþings vestra
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs Húnaþings vestra