Útboð á akstri fyrir eldri borgara í dagþjónustu
Húnaþing vestra auglýsir útboð vegna aksturs fyrir eldri borgara í dagþjónustu í Húnaþingi vestra.
Um er að ræða akstur tvisvar sinnum á dag á virkum dögum. Frávikstilboð eru heimiluð.
Áhugasamir geta óskað eftir útboðsgögnum á netfanginu siggi@hunathing.is eða í síma 455-2400.
Yfirlit um tímasetningar:
- Fyrirspurnatíma lýkur 17. mars 2023.
- Samhljóða svör verða birt 20. mars 2023 kl. 15:00.
- Tilboð verða opnuð 24. mars kl. 13:00.
- Opnunarstaður tilboða, skrifstofa Húnaþings vestra.
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs Húnaþings vestra