Upprekstur búfjár í Kirkjuhvamm
Að undangenginni úttekt héraðsfulltrúa Landgræðslu ríkisins hefur verið ákveðið að heimila upprekstur búfjár í Kirkjuhvamm árið 2014 skv. eftirfarandi:
Sauðfé frá og með 6. júní nk. og hross frá og með 24. júní nk.
Þeir íbúar sem lögheimili eiga í fyrrum Hvammstangahreppi og hyggjast nýta sér heimild til upprekstrar búfjár í Kirkjuhvamm skulu tilkynna það skriflega til skrifstofu Húnaþings vestra og tilgreina jafnframt fjölda búfjár sem sleppt verður.
Hvammstangi 3. júní 2014
Skúli Þórðarson, sveitarstjóri.