Upprekstur búfjár í Kirkjuhvamm

Upprekstur búfjár í Kirkjuhvamm

Að undangenginni úttekt héraðsfulltrúa Landgræðslu ríkisins hefur verið ákveðið að heimila upprekstur búfjár í Kirkjuhvamm árið 2013 skv. eftirfarandi:

Sauðfé frá og með 10. júní nk. og hross frá og með 28. júní nk.

Þeir íbúar sem lögheimili eiga í fyrrum Hvammstangahreppi og hyggjast nýta sér heimild til upprekstrar búfjár í Kirkjuhvamm skulu tilkynna það skriflega til skrifstofu Húnaþings vestra og tilgreina jafnframt fjölda búfjár sem sleppt verður.

Hvammstangi 3. júní 2013
Skúli Þórðarson, sveitarstjóri.

Var efnið á síðunni hjálplegt?