Upplýsingar vegna Covid-19 smits í Húnaþingi vestra

Upplýsingar vegna Covid-19 smits í Húnaþingi vestra

Í gær var fyrsta smitið  Covid-19 greint í Húnaþingi vestra þegar staðfest var smit hjá starfsmanni Grunnskóla Húnaþings vestra. 

Tölvupóstur hefur verið sendur á hlutaðeigandi sem eru komin í sóttkví til 30. mars. Einnig var sendur póstur á 8 starfsmenn skólans sem komir eru í sóttkví. 

Verið er að vinna í frekari smitrakningu og ekki er vitað hvenær skóli getur tekið til starfa aftur að hluta eða ekki.

Um leið og frekari upplýsingar berast verða þær sendar á foreldra og starfsmenn skólans.

 Smitrakningarteymi almannavarna og sóttvarnalæknis vill árétta eftirfarandi:

Einstaklingur fer í sóttkví ef hann hefur:

·       Mögulega umgengist einstakling með nýja kórónuveirusýkingu

·       Verið á áhættusvæði en er ekki ennþá veikur sjálfur.

Aðrir á heimilinu sem ekki voru útsettir fyrir smitinu þurfa EKKI í sóttkví. Ef um ungt barn er að ræða er nauðsynlegt að fullorðinn einstaklingur fari í sóttkví með barninu.

Mikilvægt er að skipuleggja umgengni á heimilinu þannig að þeir sem eru í sóttkví og hinir séu sem allra minnst á sömu svæðum íbúðarinnar. Í sameiginlegum rýmum eins og á salerni og í eldhúsi þarf að gæta sérstaks hreinlætis.

Sóttkví vegna COVID-19 eru 14 dagar frá þeim degi sem einstaklingur var nálægt smituðum einstakling. Ef einstaklingur í sóttkví fær einkenni á hann að hringja í heilsugæsluna sína næsta virka dag til að fá sýnatöku.

Frekari leiðbeiningar vegna sóttkvíar í heimahúsi er að finna á https://www.covid.is/flokkar/sottkvi.is og www.landlæknir.is

Vinsamlega kynnið ykkur leiðbeiningarnar vel. Ef spurningar vakna má hafa samband við netspjall á www.heilsuvera.is

 

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?