UNGT FÓLK OG LÝÐHEILSA 2026

UNGT FÓLK OG LÝÐHEILSA 2026


UMFÍ stendur fyrir ungmennaráðstefnu sem ber heitið Ungt fólk og lýðheilsa. Ráðstefnan verður haldin í skólabúðum UMFÍ á Reykjum í Hrútafirði dagana 18. –20. september.

Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er blómstrum, styrkjumst og tengjumst. Hún vísar til þess hvernig við getum eflt andlega, líkamlega og félagslega heilsu okkar í heimi þar sem áreiti, hraði og skjánotkun hafa sífellt meiri áhrif á daglegt líf.

Ráðstefnan er ætluð ungmennum á aldrinum 15 - 25 ára. Ef þið viljið kynna ykkur ráðstefnuna frekar getið þið skannað QR kóðan hér fyrir neðan. Þeir sem hafa áhuga eru hvattir til þess að sendi póst á johann@hunathing.is og segja hvers vegna þeir vilja taka
þátt. Ungmennaráð velur síðan úr umsóknum 13. ágúst.

Var efnið á síðunni hjálplegt?