Umsókn um leigu á íbúðum á Norðurbraut 15 Hvammstanga

Umsókn um leigu á íbúðum á Norðurbraut 15 Hvammstanga

Brák íbúðafélag hses. auglýsir eftir umsóknum um leigu á 8 íbúðum við Norðurbraut 15, Hvammstanga

Um er að ræða:

  • fjórar 3ja herbergja íbúðir, um 81 m² að stærð, leiguverð er 226.800 kr.
  • tvær 2ja herbergja íbúðir, um 58 m² að stærð, leiguverð er 171.100 kr.
  • tvær 4ra herbergja íbúðir, um 95 m² að stærð, leiguverð er 254.600 kr.

Íbúðirnar verða tilbúnar til afhendingar frá og með 1.7.2026

Brák íbúðafélag er rekið án hagnaðarmarkmiða. Markmið félagsins er að bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni fjölskyldna og einstaklinga.

Um útleigu íbúðanna gilda lög um almennar íbúðir nr. 52/2016. Samkvæmt lögum og reglugerðum eru skilgreind tekju- og eignamörk, sem og viðmið um greiðslubyrði leigu.

Uppbygging íbúðanna er í samræmi við húsnæðisáætlun sveitarfélagsins og er gott dæmi um samstarfsverkefni þar sem stuðningur sveitarfélags og ríkis er nýttur til uppbyggingar íbúðarhúsnæðis utan höfuðborgarsvæðisins.

Umsókn um leigu

Umsóknir skulu sendar á netfangið: brakibudafelag@brakibudafelag.is

Með umsókn skulu fylgja:

  • upplýsingar um hagi og húsnæðisstöðu umsækjenda,
  • afrit af síðasta skattframtali,
  • afrit af staðgreiðsluskrá ársins.

Athugið að endurnýja þarf eldri umsóknir um félagslega íbúð hjá Húnaþingi vestra.

Umsóknarfrestur er til og með 8.6.2026

Brák íbúðafélag hses. úthlutar íbúðum þegar farið hefur verið yfir allar umsóknir.

Var efnið á síðunni hjálplegt?