Umsjón hátíðarhalda 17. júní 2026

Umsjón hátíðarhalda 17. júní 2026

Húnaþing vestra auglýsir eftir aðila, félagasamtökum eða einstaklingum sem er reiðubúinn að taka að sér umsjón með undirbúningi og framkvæmd hátíðarhalda á Hvammstanga á þjóðhátíðardaginn 17. júní 2026

Áhugasamir skili umsóknum til Jóhanns Tengslafulltrúa í netfangið johann@hunathing.is eða skrifstofu Húnaþings vestra.

Í umsókn komi fram hugmyndir umsækjanda um dagskrá og annað er lýtur að framkvæmd hátíðarhaldanna. Sveitarfélagið greiðir allt að 300.000 kr. fyrir framkvæmdina.

Var efnið á síðunni hjálplegt?