Umhverfisviðurkenningar veittar

Á mynd: Elín Jóna formaður byggðarráðs, Erla og Ína Björk úr dómnefndinni ásamt Sólrúnu og Mikael, P…
Á mynd: Elín Jóna formaður byggðarráðs, Erla og Ína Björk úr dómnefndinni ásamt Sólrúnu og Mikael, Pétri og Ármanni syni Péturs.

Umhverfisviðurkenningar Húnaþings vestra 2017 voru veittar á fjölskyldudegi "Elds í Húnaþingi" laugardaginn 29. júlí s.l.

Umhvefisviðurkenningar hlutu eftirtaldir;

Strandgata 2, Hvammstanga fyrir fallega og snyrtilega einkalóð. Lóðin er byggð á gömlum grunni, þar sem fléttast saman gamall trjágróður og ýmsar nýjungar og nútíma þægindi. Eigendur eru Sólrún Guðfinna Rafnsdóttir og Mikael Þór Björnsson.

Neðri-Torfustaðir, Miðfirði fyrir vel hirt sveitabýli, þar sem mannvirki eru vel máluð og ásýndin og umhverfið snyrtilegt og stílhreint. Tvíbýlt er á jörðinni en sameiginlegur búskapur. Eigendurnir er annars vegar Bjarney Alda Benediktsdóttir og Pétur Hafsteinn Sigurvaldason og hins vegar Benedikt Björnsson og Heiðrún Brynja Guðmundsdóttir.

Viðurkenningarnar bera þessum aðilum vitni um atorku og umhyggju fyrir fallegu og snyrtilegu umhverfi.

Var efnið á síðunni hjálplegt?