Umhverfisviðurkenningar 2019

Umhverfisviðurkenningar 2019
Óskað er eftir ábendingum og tilnefningum til umhverfisviðurkenninga Húnaþings vestra 2019.
Hægt er að senda tölvupóst á netfangið;  umhverfisstjori@hunathing.is eða með því að hringja á skrifstofu Húnaþings í síma 455-2400, fyrir 25. júlí nk.
 
Með umhverfisviðurkenningum vill nefndin sem er skipuð af sveitarstjórn Húnaþings vestra vekja athygli á því sem vel er gert í sveitarfélaginu hvað varðar hirðingu og frágang lóða, snyrtilega sveitarbæi og atvinnulóðir. Einnig má benda á önnur svæði eða einstaklinga/hópa sem skilið ættu viðurkenningu. 
 
Með sumarkveðju
Nefnd um veitingu umhverfisviðurkenninga
 
Var efnið á síðunni hjálplegt?