Umhverfisviðurkenningar 2018 - óskað eftir tilnefningum

Umhverfisviðurkenningar 2018 - óskað eftir tilnefningum

Umhverfisviðurkenningar 2018

Óskað er eftir ábendingum og tilnefningum til umhverfisviðurkenninga Húnaþings vestra 2018. Hægt er að senda tölvupóst á netfangið;  umhverfisstjori@hunathing.is eða með því að hringja á skrifstofu Húnaþings í síma 455-2400, fyrir 12. ágúst nk.

Með umhverfisviðurkenningum vill nefndin sem er skipuð af sveitarstjórn Húnaþings vestra vekja athygli á því sem vel er gert í sveitarfélaginu hvað varðar hirðingu og frágang lóða, snyrtilegra sveitarbæja og atvinnulóða. Einnig má benda á önnur svæði eða einstaklinga sem skilið ættu viðurkenningu.

Með sumarkveðju

Nefnd um veitingu umhverfisviðurkenninga

Var efnið á síðunni hjálplegt?