Umfjöllun um Borðeyri

Borðeyri. Mynd af www.tangahus.is
Borðeyri. Mynd af www.tangahus.is

Í þættinum Sögum af landi var nýverið fjallað um Borðeyri á skemmtilegan og upplýsandi hátt. Í kynningu á þættinum á vefsíðu RÚV segir eftirfarandi: Borðeyri er eitt fámennasta þorp landsins en þar búa um 10 íbúar. Í þættinum er flakkað um þetta litla þorp sem er eins og gluggi inn í liðna tíð. Við ræðum meðal annars við sagnfræðinginn Vilhelm Vilhelmsson sem hefur kynnt sér náið sögu Borðeyrar, ræðum einnig við Kristínu Árnadóttur íbúa á Borðeyri um elsta hús plássins, svokallað Riis-hús. Sláum svo á þráðinn til tónlistarkonunnar Ásbjargar Jónsdóttur en fjölskylda hennar hefur undanfarið unnið að endurbótum á einu hússanna á staðnum. Að lokum flökkum við um gistiheimilið Tangahús í fylgd með gestgjafanum Ingibjörgu Rósu Auðunsdóttur.

Þáttinn er að finna hér. 

Var efnið á síðunni hjálplegt?