Umfangsmiklar framkvæmdir við Sundlaugina á Hvammstanga

Umfangsmiklar framkvæmdir við Sundlaugina á Hvammstanga

Fyrir dyrum standa umfangsmiklar framkvæmdir við sundlaugina á Hvammstanga. Gerður verður lagnakjallari milli sundlaugar og húss til að auðvelda viðhald lagna sem hefur verið vandkvæðum bundið undanfarin ár. Lagnir eru komnar til ára sinna og hafa verið að gefa sig með tilheyrandi óþægindum. Einnig stendur til að skipta um dúk á sundlaug sem líka er kominn til ára sinna og brýnt að endurnýja til að tryggja öryggi sundgesta og koma í veg fyrir tjón á lauginni sjálfri.

Vegna þessara framkvæmda er því miður nauðsynlegt að loka sundlauginni og sundlaugarsvæðinu öllu í nokkurn tíma. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist 27. mars og standi að hámarki út júní. Ef nokkur kostur er verður heitur pottur opnaður á framkvæmdatímanum en aðeins þegar hægt er að tryggja öryggi gesta á framkvæmdasvæðinu.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda. Sundlaugarferðir eru stór þáttur í lífi margra íbúa en til að tryggja öruggan rekstur laugarinnar og pottanna til langs tíma eru þessar framkvæmdir nauðsynlegar. Við þökkum sundlaugargestum skilninginn og munum leggja allt kapp á að ljúka framkvæmdum eins fljótt og auðið er.

Framkvæmdirnar hafa ekki áhrif á íþróttasal og rækt. Sturtur verða opnar. Vegna minnkaðra umsvifa verður íþróttasal og rækt þó lokað yfir páskana og hugsanlega aðra hátíðisdaga fram á vor sem verður nánar auglýst síðar.

Árskort í sund verða framlengd um þann tíma sem lokunin stendur yfir.

Var efnið á síðunni hjálplegt?