Tímabundin staða stuðningsfulltrúa við Grunnskóla Húnaþings vestra

Tímabundin staða stuðningsfulltrúa við Grunnskóla Húnaþings vestra

Við Grunnskóla Húnaþings vestra er laus tímabundin staða stuðningsfulltrúa á yngsta stigi, 75% starf.

Við leitum að einstaklingi með:

  • Áhuga á að starfa með börnum

  • Góða íslenskukunnáttu

  • Lipurð í mannlegum samskiptum

  • Skipulagshæfileika

  • Hæfni til að sýna frumkvæði í starfi

 

Starfstími er kennslu- og starfsdaga 24. ágúst 2021 til og með 1. júní 2022.

Kaup og kjör samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags. Í samræmi við jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störfin. Upplýsingar um skólastarfið má finna á heimasíðu skólans.

Umsóknafrestur er til kl. 12:00 miðvikudaginn 18. ágúst 2021. Umsóknir skulu berast rafrænt á siggi@skoli.hunathing.is

Frekari upplýsingar veitir Sigurður Þór Ágústsson skólastjóri í síma 455-2900 / 862-5466.

 

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?