Tímabundin breyting á afgreiðslu Ráðhúss

Tímabundin breyting á afgreiðslu Ráðhúss

Upp er kominn grunur um að loftgæði í kjallara Ráðhússins og mögulega á neðri hæð séu ekki fullnægjandi. Unnið er að nánari athugun á aðstæðum og á meðan niðurstaðna er beðið verða gerðar tímabundnar breytingar á afgreiðslu Ráðhússins í varúðarskyni.

Afgreiðsla á neðri hæð verður lokuð og gestum þess í stað beint upp á aðra hæð. Hægt er að fara þangað með lyftu úr anddyri. Til að gæta fyllstu varúðar er þeim sem eru sérstaklega viðkvæmir í öndunarfærum bent á að sinna erindum sínum símleiðis eða með tölvupósti á meðan athugun stendur yfir.

Hægt er að hafa samband við starfsmenn í síma og með tölvupósti með sama hætti og áður. Opnunartími Ráðhússins verður óbreyttur þar til annað verður tilkynnt.

Þegar niðurstöður athugana liggja fyrir verða veittar frekari upplýsingar og tilkynnt um hvort þörf sé á frekari breytingum á starfsemi eða afgreiðslu Ráðhússins.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þessar tímabundnu ráðstafanir kunna að valda. Heilsa og öryggi starfsmanna og gesta Ráðhússins eru okkur mikilvæg og því teljum við rétt að gæta varúðar á meðan aðstæður eru kannaðar.

Nánari upplýsingar veitir Ingimar Ingimarsson, sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs, á netfanginu eignir@hunathing.is.

Var efnið á síðunni hjálplegt?