Tillaga að deiliskipulagi fyrir Skrúðvang á Laugarbakka

Tillaga að deiliskipulagi fyrir Skrúðvang á Laugarbakka

Auglýsing

Tillaga að deiliskipulagi fyrir Skrúðvang á Laugarbakka

Málsnr. 646/2026

Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti á 403. fundi sínum þann 13. maí 2026 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Skrúðvang á Laugarbakka, sbr. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Tillagan tekur til um 15,1 ha svæðis og gerir ráð fyrir uppbyggingu fyrir ferðaþjónustu, verslun og þjónustu, m.a. þjónustuhúsi, allt að 15 gestahúsum, tjaldsvæði, bílastæðum, aðkomu, gönguleiðum og tengdri aðstöðu. Í tillögunni er lögð áhersla á að uppbygging taki mið af landi, landslagi og núverandi aðstæðum á svæðinu.

Deiliskipulagstillagan er auglýst samhliða meðferð tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014–2026 vegna Skrúðvangs, þar sem gert er ráð fyrir landnotkun fyrir verslun og þjónustu á svæðinu.

 

Tillagan er auglýst frá 27.maí til 10. Júlí 2026

 

Uppdráttur og greinargerð eru aðgengileg á skrifstofu Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga, á heimasíðu sveitarfélagsins www.hunathing.is, og í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar.

Í skipulagsgáttinni er jafnframt hægt að senda inn ábendingar eða athugasemdir og á netfangið skipulag@hunathing.is með tilvísun í „dsk-Skrúðvangur“.

Hér má sjá uppdrátt af breytingunni

 

 

Skipulagsfulltrúi Húnaþings vestra

Var efnið á síðunni hjálplegt?