Tilkynning-Upplýsingar um göngur og réttir í Húnaþingi vestra.

Upplýsingar um göngur og réttir í Húnaþingi vestra.

 

Í kjölfar slæmrar veðurspár fyrir komandi helgi og tilmæla frá Almannavarnarnefnd Húnavatnssýslna var ákveðið að hefja skipulega smölun sauðfjár í þremur af sex fjallskiladeildum sem starfandi eru í Húnaþingi vestra.

Í fjallskilastjórn Hrútafjarðar að austan fóru gangnamenn af stað í gær 27. ágúst. Fé verður rekið til réttar við Hrútatungurétt í dag 28. ágúst. Réttarstörf hefjast í Hrútatungurétt á morgun 29. ágúst kl. 09:00. Smölun hefur gengið vel og göngur eru fullmannaðar.

Í fjallskilastjórn Miðfirðinga fóru gangnamenn af stað í gær 27. ágúst. Fé verður rekið í safngirðingu og stóð í girðingu við Laxahvamm í dag 28. ágúst. Stóð verður réttað í Miðfjarðarrétt á morgun 29. ágúst kl. 09:00 og fé dregið sundur um kl. 13:00. Smölun hefur gengið vel og göngur eru nánast fullmannaðar.

Í fjallskilastjórn Víðdælinga fóru gangnamenn af stað í gær 27. ágúst. Fé verður rekið norður fyrir heiðargirðingu í dag 28. ágúst.  Safn verður rekið til Víðidalstunguréttar á morgun 29. ágúst og réttarstörf munu hefjast kl. 10:00 á föstudagsmorgun 30. ágúst. Smölun fjárins hefur gengið erfiðlega enda um langan vega að fara. Göngur eru fullmannaðar.

Í fjallskilastjórnum Hrútafjarðar að vestan, Vatnsness og Vesturhóps eru leitir ekki samræmdar sérstaklega en bændur munu almennt smala heimalönd sín fyrir helgi. Ekki er gert ráð fyrir að skilaréttir verði í Hvalsárrétt, Hamarsrétt né Þverárrétt.

Sveitarstjórn Húnaþings vestra vill koma á framfæri þakklæti til þeirra fjölmörgu sem brugðist hafa skjótt við og lagt fram aðstoð sína við gangnastörf á Húnvetnsku heiðunum. Íbúar sveitarfélagsins og aðrir sem tök hafa á eru hvattir til að veita búfjáreigendum aðstoð við réttarstörf næstu daga.

Hvammstangi 28. ágúst 2013
Skúli Þórðarson, sveitarstjóri

Var efnið á síðunni hjálplegt?