Tilkynning um upprekstur búfjár á Víðidalstunguheiði sumarið 2017

Tilkynning um upprekstur búfjár á Víðidalstunguheiði sumarið 2017

Fjallskilanefnd Víðdælinga fór ásamt ráðunaut að kanna ástand gróðurs þann 6.júní 2017.

Ákveðið var að leyfa upprekstur sauðfjár í löndin milli girðinga að austan, í Krók og á Tungur frá og með 6.júní. Upprekstur sauðfjár á Austurheiði er leyfður frá og með 12.júní.

Upprekstur hrossa er leyfður frá og með 24.júní nk. fram á Víðidalstunguheiði.

 

Fjallskilanefnd Víðdælinga

Var efnið á síðunni hjálplegt?