Tilkynning um upprekstur búfjár á Víðidalstunguheiði sumarið 2016

Þann 7.júní sl. fór fjallskilanefnd Víðdælinga ásamt ráðunaut til að kanna ástand gróðurs á Víðidalstunguheiði.  Gróður er kominn vel af stað, sprungið út á hrísi hvar sem við fórum og blóm tekin að blómstra.

Ákveðið var að leyfa upprekstur sauðfjár í löndin milli girðinga að austan, í Krók og á Tungur frá og með miðvikudeginum 8. júní. Upprekstur sauðfjár á Austurheiði er leyfður frá og með 15.júní nk.  

Upprekstur hrossa er leyfður frá og með 25.júní nk. fram á Víðidalstunguheiði. 

 

                                               Fjallskilanefnd Víðdælinga

Var efnið á síðunni hjálplegt?