Tilkynning um tímasetningu sveitarstjórnarfunda

Tilkynning um tímasetningu sveitarstjórnarfunda

Í 1.mgr. 11.gr. samþykktar um stjórn Húnaþings vestra er kveðið á um að í upphafi kjörtímabils sveitarstjórnar skuli sveitarstjórn taka ákvörðun um hvenær sveitarstjórnarfundi eru haldnir í samræmi við 8.gr. sömu samþykktar. Á 404. fundi sveitarstjórnar Húnaþings vestra sem fram fór þann 11. júní sl. og jafnframt var fyrsti fundur nýrrar sveitarstjórnar var svohljóðandi fært til bókar undir 9. dagskrárlið:

„Samkvæmt 1. mgr. 8. gr. samþykktar um stjórn Húnaþings vestra nr. 15/2024, fara reglulegir fundir sveitarstjórnar fram annan fimmtudag í mánuði sem ekki ber upp á almennan frídag. Fundirnir skulu að jafnaði hefjast kl. 15:00 í fundasal Ráðhúss Húnaþings vestra.“

Ofangreint tilkynnist hér með.

F.h. sveitarstjórnar,

Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri.

Var efnið á síðunni hjálplegt?