Tilkynning til notenda vatnsveitu Hvammstanga

Tilkynning til notenda vatnsveitu Hvammstanga

Frá því að upp kom grunur um mengun af völdum yfirborðsvatns í síðustu viku, hefur sýnataka leitt í ljós að önnur tveggja linda sem hafa verið í notkun er menguð.

Sú lind hefur nú verið tekin úr notkun. Þrátt fyrir það eru íbúar beðnir um að halda áfram að sjóða allt neysluvatn þar til upplýst verður um annað. Vonir standa til að vatnsveitan verði komin í samt lag í lok þessarar viku.

Rekstrarstjóri

Var efnið á síðunni hjálplegt?