Vegna Covid-19 faraldurs sem nú herjar á landið fellur niður fyrirhuguð ferð fulltrúa sýslumanns til Hvammstanga þriðjudaginn 7. apríl nk. Þjónustuþegum er bent á að beina erindum sínum rafrænt á netfang embættisins, nordurlandvestra@syslumenn.is eða hafa samband við aðalskrifstofu embættisins í síma 458-2500. Reynt verður eftir fremsta megni að leysa úr þeim erindum sem berast með þessum hætti.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
F.h. sýslumannsins á Norðurlandi vestra
Birna Ágústsdóttir, sýslumannsfulltrúi.