Tilboð í flotbryggju

Tilboð í flotbryggju

Sveitarfélagið auglýsir eftir tilboðum í flotbryggju. Flotbryggjan er ekki í góðu standi og verður fargað ef ekki fást tilboð í hana. Tilboð skulu berast á tölvupóstfangið eignir@hunthing.is fyrir kl 12:00 þriðjudaginn 24. febrúar. Ætlast er til þess að hún verði fjarlægð fyrir kl. 16:00 þriðjudaginn 3. mars. Verði tilboðsgjafi ekki búinn að fjarlægja hana fyrir þann tíma verður hún fjarlægð og henni fargað.

Frekari upplýsingar veitir sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs í gegnum tölvupóstfangið eignir@hunathing.is eða síma 455-2400.

Var efnið á síðunni hjálplegt?