Þrjár lausar stöður í leikskólanum Ásgarði á næsta skólaári
Leikskólakennarar/leiðbeinendur
Leikskólinn Ásgarður auglýsir:
- Tvær ótímabundar 100% stöður frá 4. ágúst 2026
- Ein tímabundin 100% staða frá 4. ágúst 2026 til 13. júlí 2027
Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi með góða íslenskukunnáttu, áhuga á að vinna með börnum og góða hæfni í mannlegum samskiptum. Öll eru hvött til að sækja um.
Menntunar- og hæfnikröfur
- Leyfisbréf, háskólamenntun og/eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Góð íslenskukunnátta
- Áhugi á að starfa með börnum, reynsla af starfi með börnum er kostur
- Fagmennska og lausnamiðuð hugsun
- Skipulagshæfileikar og stundvísi
- Hæfni til að sýna frumkvæði í starfi
- Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
- Hæfni til að vinna í teymi
Kaup og kjör samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.
Upplýsingar um leikskólastarfið má finna á http://asgardur.leikskolinn.is/
Hugmyndafræði skólans byggir á vali og hópstarfi. Uppeldisstefna Húnaþings vestra er Jákvæður agi.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl næstkomandi. Umsókn skal berast rafrænt á gudny.kristin@hunathing.is. Umsókninni á að fylgja kynningarbréf, ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur.
Frekari upplýsingar veitir Guðný Kristín Guðnadóttir, 451-2343 eða 846-0162
Umsækjandi má hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940 né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því í auglýsingu að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur hafi hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, að veittri fræðslu til hans þar að lútandi.