Þjóðgarður á miðhálendinu Kynningarfundur þverpólitískrar nefndar

Þjóðgarður á miðhálendinu  Kynningarfundur þverpólitískrar nefndar

Þverpólitísk nefnd sem vinnur að tillögum um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu boðar til opins fundar um vinnu nefndarinnar.

Á fundinum verður farið yfir verkefni nefndarinnar fram til þessa, ásamt því að ræða lokaskrefin í vinnu hennar.

Nefndin mun skila lokaskýrslu með tillögum sínum til umhverfis- og auðlindaráðherra í september næstkomandi.

Fundurinn er öllum opinn og fer fram í Logalandi 12. ágúst næstkomandi.

Fundurinn hefst kl. 20:00 og áætlað er að honum ljúki 21:30.

 

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?