Tækifæri í fjárfestingu í atvinnulífi á Norðurlandi

Kynningarfundir með fjárfestingafélaginu Tækifæri hf. verða haldnir

miðvikudaginn 11. mai n.k.

  • klukkan 12 í Eyvindarstofu á Blönduósi (boðið verður upp á súpu og brauð)

  • klukkan 15 í Hlöðunni á Hvammstanga (boðið verður upp á kaffi og með því)

Á fundunum mun Jón Steindór Árnason framkvæmdastjóri Tækifæris kynna starfsemi félagsins og
fjárfestingar, auk þess að fara yfir möguleika í nýjum fjárfestingum.

Tækifæri hf. er fjárfestingafélag sem fjárfestir í nýsköpun á Norðurlandi. Félagið var stofnað árið
1999 og hefur fjárfest í yfir 50 fyrirtækjum á starfstíma sínum. Tilgangur með starfsemi þess er að
taka þátt í stofnun og starfsemi fyrirtækja sem rekin eru á grundvelli arðsemisjónarmiða, fela í sér
nýmæli í atvinnulífinu og eru mikilvægur þáttur í uppbyggingu atvinnulífs á starfssvæði félagsins.


Áhugasamir eru hvattir til að fjölmenna

Var efnið á síðunni hjálplegt?