Sýningaropnun í Hillebrandtshúsi á Blönduósi

Sýningaropnun í Hillebrandtshúsi á Blönduósi

Listasýningin Heima/Home verður opnuð í Hillebrandtshúsi laugardaginn 2. september kl. 14:00. Um er að ræða samsýningu fjölda áhuga- og atvinnulistafólks á norðvesturlandi þar sem útgangspunkturinn er hvað HEIMA stendur fyrir. Boðið verður upp á léttar veitingar og lifandi tónlist. Allir eru hjartanlega velkomnir!

Einnig er minnt á markað í Krúttinu í gamla bænum á Blönduósi, sem haldinn verður á milli kl. 14 og 17 sama dag - hér er kjörið tækifæri til að eiga góða stund saman í gamla bænum og njóta þess sem þar er boðið upp á!

Sýningin verður opin alla daga út septembermánuð milli kl. 14 og 17.

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?