Sumarvinna hjá Húnaþingi vestra 2015

Sumarvinna hjá Húnaþingi vestra 2015

Sumarstörf 2015

Skemmtileg og gefandi útistörf

- Flokkstjórar við Vinnuskólann.
Í starfinu felst skipulagning og stýring á vinnuhópum unglinga á aldrinum 13 til 16 ára við ýmis garðyrkjustörf o.fl.
- Flokkstjóri sláttuhóps.
Í starfinufelst skipulagning og stýring vinnuhóps 17 ára og eldri við slátt, rakstur og o.fl

Í störfunum felst leiðsögn, hópefli og hvatning til góðra verka.
Mikilvægt er að umsækjendur séu stundvísir, samviskusamir, séu góðar fyrirmyndir og eigi auðvelt með að vinna með öðru fólki. Áhugi af garðyrkjustörfum nauðsynlegur.
Æskilegt að umsækjendur séu 20 ára eða eldri. Daglegur vinnutími er 8 stundir, virka daga.

Hægt er að senda tölvupóst á netfangið ina@hunathing.is til að fá upplýsingar um störfin og senda inn umsóknir. Einnig er hægt að hringja í 455-2400 til að fá upplýsingar um launakjör og fl. Hægt er að senda umsóknir á skrifstofu, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga. Umsóknir verða að berast fyrir 10. apríl n.k.

Ína Björk Ársælsdóttir
Umhverfisstjóri


Var efnið á síðunni hjálplegt?