Sumarstörf hjá Húnaþingi vestra

Flokkstjórar við Vinnuskólann. Í starfinu felst skipulagning og stýring á vinnuhópum ungmenna á aldrinum 13 til 16 ára við ýmis garðyrkjustörf o.fl einnig; Leiðsögn , hópefli og hvatning til góðra verka.  Í starfi flokkstjóra sláttuhóps felst skipulagning og stýring á vinnuhópum 16 ára og eldri við slátt, rakstur og önnur tilfallandi verkefni. Hæfniskröfur; hæfni í mannlegum samskiptum, góð fyrirmynd, samviskusemi og stundvísi. Unnið er virka daga frá kl. 8:00-17:00.
Frekari upplýsingar gefur Ína Björk Ársælsdóttir umhverfisstjóri í s. 771-4959 & ina@hunathing.is

 

Verkamaður í áhaldahús. Í starfinu felast  ýmis verkefni á vegum sveitarfélagsins, t.d.  við viðhald veitna, sláttur á opnum svæðum og ýmisleg annað tilfallandi. Reynsla af sambærilegu starfi er kostur, góð þjónustulund, Samviskusemi og stundvísi. Vinnuvélaréttindi kostur. Daglegur vinnutími er 8 stundir.
Frekari upplýsingar gefur Skúli Húnn Hilmarsson, rekstrarstjóri í s. 771-4950 & skuli@hunathing.is

Upplýsingar um launakjör fást hjá launafulltrúa í Ráðhúsi.

Skriflegum umsóknum skal skilað í Ráðhús Húnaþings vestra, eða senda á netfangið, skrifstofa@hunathing.is fyrir 10. apríl nk. 

Var efnið á síðunni hjálplegt?