Sumarstörf 2014

 

Umsóknarfrestur er til 6. apríl n.k.

Starfsfólk óskast til eftirfarandi starfa hjá Húnaþingi vestra sumarið 2014:

Umhverfis-og framkvæmdasvið

Flokkstjórar við Vinnuskólann. Í starfinu felst skipulagning og stýring á vinnuhópum unglinga á aldrinum 13 til 16 ára við ýmis garðyrkjustörf o.fl.
flokkstjóri sláttuhóps. Í starfinufelst skipulagning og stýring á vinnuhópum 16 ára og eldri við slátt, rakstur og o.fl.. Æskilegt að umsækjendur séu 20 ára eða eldri. Unnið er virka daga frá kl. 8:00-17:00.  Upplýsingar um störfin gefur Ína Björk í Ráðhúsi.
Verkamenn í áhaldahús. Í starfinu felast  ýmis verkefni á vegum sveitarfélagsins, t.d.  við viðhald veitna, sláttur á opnum svæðum og ýmisleg annað tilfallandi. Reynsla af sambærilegu starfi og vinnuvélaréttindi kostur. Daglegur vinnutími er 8 stundir. Upplýsingar um starfið gefur Ólafur í síma. 455-2400 eða 895-4453

Fjölskyldusvið

Starfsmenn í Íþróttamiðstöð. Umsækjendur munu sjá um afgreiðslu og eftirlit í sundlaug og íþróttasal, sjá um þrif og annað tilfallandi. Unnið er á vöktum. Umsækjendur skulu vera orðnir 18 ára og þurfa að standast stöðupróf í sundi.
Leikjanámskeið. Umsækjendur munu vinna í 2-4 vikur, fyrir hádegi með börnum fædd 2008-2005. Upplýsingar um störfin gefur Tanja í síma. 858-1532

Við félagslega heimaþjónustu Starfið felst aðallega í því að sjá um almenn þrif og erindi (t.d innkaup) fyrir notendur. Um er að ræða heimaþjónustu á Hvammstanga og í dreifbýli.
Einnig vantar sumarafleysingu við úrkeyrslu á mat, daglega áætlað 2 tímar um hádegisbilið. Upplýsingar um störfin gefa Henrike og Esther í Ráðhúsi.

Skriflegum umsóknum  skal skilað á skrifstofu Húnaþings vestra fyrir 6. apríl n.k., einnig er heimilt að senda umsóknir á netfangið alla@hunathing.is. Hæfniskröfur; samviskusemi, stundvísi og hæfni mannlegum samskiptum. Upplýsingar um launakjör eru veittar á skrifstofu Húnaþings vestra í Ráðhúsi, í síma 455-2400

Var efnið á síðunni hjálplegt?