Sumarstarfsfólk óskast til starfa í Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra sumarið 2015

Tímabil:   Byrjun júní til loka ágúst.

Lýsing á starfinu:   Starfið felur í sér allan daglegan rekstur, s.s. öryggisgæslu á útisvæði og búningsklefum, þrif á öllum vistaverum sundlaugar og íþróttamiðstöðvar, uppgjör,  þjónustu við gesti íþróttamiðstöðvar og eftirlit með öryggiskerfum.

Kröfur v/starfs:  Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri, hafa ríka þjónustulund og samstarfsvilja. Æskilegt er að viðkomandi hafi farið á viðurkennt skyndihjálparnámskeið og hafi tekið sundlaugarvarðapróf. Reynsla er kostur.

Vinnutími:  Vaktavinna

Launakjör: Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og stéttarfélagsins Samstöðu.

Yfirmaður: Tanja Ennigarð,  Íþrótta- og tómstundafulltrúi

Áhugasamir sendi umsókn ásamt ferilskrá á netfangið: sundlaug@hunathing.is eða á skrifstofu Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga.

Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl 2015

Var efnið á síðunni hjálplegt?