Sumarstarfsfólk í íþróttamiðstöð óskast

Sumarstarfsfólk óskast til starfa í Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra. Umsækjendur munu sjá um afgreiðslu, eftirlit í sundlaug og íþróttasal, þrif og fl. Umsækjendur skulu vera orðnir 18 ára og þurfa að standast stöðupróf í sundi.

Umsóknir skulu vera skriflegar og hafa borist á skrifstofu Húnaþings vestra fyrir 10. apríl nk. Heimilt er að senda umsóknir á netfangið sundlaug@hunathing.is.

Íþrótta- og tómstundafulltrúi.

Var efnið á síðunni hjálplegt?