Styrkur til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka.

Forráðamönnum félaga-og félagasamtaka í Húnaþingi vestra er bent á að samkvæmt “Reglum um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka” sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar Húnaþings vestra þann 14. júní 2012  þurfa þau félög og félagasamtök sem óska eftir styrk til greiðslu fasteignaskatts að sækja um á þar til gerðum eyðublöðum.  Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skila á skrifstofu Húnaþings vestra að Hvammstangabraut 5, Hvammstanga. Umsóknareyðublöðin má nálgast á skrifstofu sveitarfélagsins eða á heimasíðunni “hunathing.is”,stjórnsýsla/eyðublöð.  

Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs Húnaþings vestra.

Var efnið á síðunni hjálplegt?