Styrkumsóknir fyrir árið 2019

Sveitarstjórn Húnaþings vestra vinnur nú að gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019.  Félagasamtökum og einstaklingum í Húnaþingi vestra er hyggjast sækja um styrki frá sveitarfélaginu til einstakra verkefna á næsta ári er bent á að fylla út þar til gert eyðublað og senda ásamt fylgigögnum til skrifstofu sveitarfélagsins að Hvammstangabraut 5 Hvammstanga eða á netfangið skrifstofa@hunathing.is eigi síðar en 13. september nk.  Umsóknir sem kunna að berast að þeim fresti liðnum munu ekki njóta forgangs við afgreiðslu sveitarstjórnar.  Umsóknareyðublöð má finna á heimasíðu Húnaþings vestra undir eyðublöð á forsíðunni.
Hyggist félagasamtök eða einstaklingar sækja um fjárstyrk vegna verkefnis eða málefna sem Húnaþing vestra veitti styrk til á árinu 2018 skal nýrri umsókn fylgja skrifleg greinargerð um ráðstöfun styrksins.

Var efnið á síðunni hjálplegt?