Styrkumsóknir fyrir árið 2017

Sveitarstjórn Húnaþings vestra vinnur nú að gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017.  Félagasamtökum og einstaklingum í Húnaþingi vestra er hyggjast sækja um styrki frá sveitarfélaginu til einstakra verkefna á næsta ári er bent á að fylla út þar til gert eyðublað og senda ásamt fylgigögnum til skrifstofu sveitarfélagsins að Hvammstangabraut 5 Hvammstanga eða á netfangið skrifstofa@hunathing.is eigi síðar en 15. september nk.  Umsóknir sem kunna að berast að þeim fresti liðnum munu ekki njóta forgangs við afgreiðslu sveitarstjórnar.  Umsóknareyðublöð má finna á heimasíðu Húnaþings vestra undir stjórnsýsla/eyðublöð.
Hyggist félagasamtök eða einstaklingar sækja um fjárstyrk vegna verkefnis eða málefna sem Húnaþing vestra veitti styrk til á árinu 2015 skal nýrri umsókn fylgja skrifleg greinargerð um ráðstöfun styrksins á árinu 2016.

Umsóknareyðublað má nálgast hér

Guðrún Ragnarsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Var efnið á síðunni hjálplegt?