Styrkumsóknir fyrir árið 2016

Sveitarstjórn Húnaþings vestra vinnur nú að gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016. Félagasamtökum og einstaklingum í Húnaþingi vestra er hyggjast sækja um styrki frá sveitarfélaginu til einstakra verkefna á næsta ári er bent á að fylla út þar til gert eyðublað og  senda  ásamt fylgigögnum til skrifstofu sveitarfélagsins að Hvammstangabraut 5 Hvammstanga eigi síðar en 15. september nk. Umsóknir sem kunna að berast að þeim fresti liðnum munu ekki njóta forgangs við afgreiðslu sveitarstjórnar. Ekki er tekið við umsóknum í tölvupósti. Umsóknareyðublöð má finna á heimasíðu Húnaþings vestra undir stjórnsýsla/eyðublöð.
Hyggist félagasamtök eða einstaklingar sækja um fjárstyrk vegna verkefnis eða málefna sem Húnaþing vestra veitti styrk til á árinu 2015 skal nýrri umsókn fylgja skrifleg greinargerð um ráðstöfun styrksins á árinu 2015.   

Guðrún Ragnarsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Var efnið á síðunni hjálplegt?