Sveitarstjórn Húnaþings vestra vinnur nú að gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020. Félagasamtökum og einstaklingum í Húnaþingi vestra er hyggjast sækja um styrki frá sveitarfélaginu til einstakra verkefna á næsta ári er bent á að fylla út þar til gert eyðublað og senda ásamt fylgigögnum til skrifstofu sveitarfélagsins að Hvammstangabraut 5 Hvammstanga eða á netfangið skrifstofa@hunathing.is eigi síðar en 13. september nk. Umsóknir sem kunna að berast að þeim fresti liðnum munu ekki njóta forgangs við afgreiðslu sveitarstjórnar. Umsóknareyðublöð má finna á heimasíðu Húnaþings vestra undir stjórnsýsla/eyðublöð.
Hyggist félagasamtök eða einstaklingar sækja um fjárstyrk vegna verkefnis eða málefna sem Húnaþing vestra veitti styrk til á árinu 2019 skal nýrri umsókn fylgja skrifleg greinargerð um ráðstöfun styrksins.
Ingibjörg Jónsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs