Styrkir til Byggðasafnsins

Styrkir til Byggðasafnsins

Á dögunum fékk Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna úthlutað veglegum styrkjum frá Safnaráði. Verkefnin sem hlutu styrk að þessu sinni voru Héraðsskólinn að Reykjum, endurskipulagning til varðveislu og varðveisla kvenbúnings. Um er að ræða þrjú ólík verkefni.

Verkefnið Héraðsskólinn að Reykjum er sýningarverkefni sem leggur áherslu á að varpa ljósi á félagsleg og samfélagslega áhrif Héraðsskólans að Reykjum. Um er að ræða framhaldsverkefni en byggðasafnið hlaut styrk fyrir sama verkefni árið 2025. Verkefnið byggir á viðtölum við fyrrverandi nemendur héraðsskólans, sem og viðtölum við fyrrverandi starfsfólk og börn þeirra. Sýningin á eftir að vera hluti af grunnsýningu byggðasafnsins, enda saga héraðsskólans samtengd sögu safnsins.

Varðveisluverkefnin tvö eru gífurlega mikilvæg fyrir starfsemi safnsins. Á undanförnum árum hefur verið lögð áhersla á að tryggja öryggi safnkostsins og bæta varðveisluaðstæður. Geymslur safnsins hafa verið endurnýjaðar og skráning safnkosts betrumbætt. Stór hluti safngripa hefur verið ljósmyndaður. Nú er komið að því að skipuleggja geymslurnar eins vel og kostur er svo safneignin verði aðgengileg fyrir almenning, fræðimenn og ekki síst starfsmenn safnsins. Afgreiðsla og upplýsingaöflun þarf að ganga vel og mun verkefnið endurskipulagning til varðveislu bæta aðgengi að gripum til muna. Að lokum er verkefnið varðveisla kvenbúnings. Byggðasafnið fékk afhentan gífurlega fallegan kvenbúning fyrir nokkrum árum. Því miður hefur varðveisluaðstaða hans ekki staðist kröfur. Nú verður gerð bragarbót á því og fengnir verða sérfræðingar á sviði þjóðbúninga til að gera varðveislu búningsins það góða að hún standist þær kröfur sem gerðar eru til viðurkenndra safna.

Var efnið á síðunni hjálplegt?